Útgáfupartý og tónleikar í Þjóðmenningarhúsinu

17-12-2008

Nýi-Kvartettinn mun halda útgáfupartý og tónleika í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík á laugardaginn 20.desember kl. 16. Spiluð verða lög af nýju plötunni við kertaljós og huggulegheit. Óhætt er að segja að það verði mikið húllumhæ.

Tónleikar í Duushúsum í Reykjanesbæ

17-12-2008

Nýi-Kvartettinn mun spila tónleika í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum á föstudaginn 19. desember kl.12:15. Leikin verða lög af plötunni Fegursta rósin, og mun svo vera boðið upp á jólaglögg og piparkökur. Tónleikarnir eru á vegum tónlistarfélagsins í Reykjanesbæ.

Hvar er hægt að fá diskinn

15-12-2008

Margir hafa spurt okkur hvar sé hægt að fá diskinn okkar, Fegursta rósin. Núna er hægt að fá hann í Krónunni á Bíldshöfða, Granda, og í Lindum; í Eymundsson í Kringlunni og í Smáralind; Elko í Kópavogi, og í Iðu í Lækjargötu. Sölustöðunum fer ört fjölgandi og munum við uppfæra listann reglulega.

Amnesty með tónleika

09-12-2008

Nýi-Kvartettin mun spila á tónleikum til styrktar Amnesty International í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu á morgun kl. 20. Endilega mætið og styrkið gott málefni.

Póstlistinn

09-12-2008

Við viljum hvetja alla til að skrá sig á póstlistann okkar til að fylgjast með því sem fram fer hjá grúppunni. Þið gerið það með því að skrá ykkur hérna til hægri á síðunni.

Ný upptaka á Facebook síðu Nýja-Kvartettsins

08-12-2008

Nú er hægt að hlusta á upptökur með kvartettinum á facebook á síðunni http://www.facebook.com/pages/Nyi-Kvartettinn/46111088078 . Þar er ein upptaka sem ekki er á www.myspace.com/nyikvartettinn en það er Agnus Dei eftir Bizet.

Spilað í messu

08-12-2008

Kvartettinn spilaði við messu í Laugarneskirkju á 2. sunnudegi aðventu. Eftir messuna var svo haldið niður í safnaðarheimili þar sem spilað var fyrir fólk í kaffinu og geisladiskurinn, Fegursta rósin var til sölu. Kvartettinn hlaut fádæma viðtökur frá viðstöddum, og áheyrendur hömstruðu geisladiska eftir tónleikana eins og enginn væri morgundagurinn.

Næstu tónleikar Nýja-Kvartettsins verður hjá Tónlistarfélagi Reykjanessbæjar á næstkomandi fimmtudag kl. 12:00.

Fegursta rósin

02-12-2008

Hugmyndin að plötunni varð til við upphaf kreppunnar. Gissur hringdi í okkur félagana og krafðist aðgerða. Við gátum ekki skorast undan og hér er afraksturinn kominn. Það er hægt að hlusta á 3 lög á www.myspace.com/nyikvartettinn

Nýi-Kvartettinn kynnir plötuna Fegursta rósin

01-12-2008

Nýi-Kvartettinn mun kynna plötuna sína á Súfistanum í Lækjargötu næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20:00. Tekin verða nokkur létt lög undir kaffibolla og meððí.